Nýr forstjóri Arion banka viðriðin samkeppnislagabrot!!!!!

Fram hefur komið í “Pressunni” að Höskuldur H. Ólafsson hin nýi forstjóri Arion banka hafi verið viðriðin samkeppnilagabrot hjá tveimur fyrirtækjum þar sem hann gegndi lykilstöðu.
Hann var framkvæmdarstjóri Eimskip í 17 ár og þegar Samkeppniseftirlitið gerði þar húsleit í kjölfar kvörtunar frá Samskipum var hann framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.
Niðurstaðan var að félaginu var gert að greiða 310 milljónir í stjórnvaldssekt fyrir brot á samkeppnislögum.
Höskuldur hefur síðastliðin fjögur ár gegnt starfi forstjóra hjá Valitor – Visa Ísland. Í júní á síðasta ári gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Valitor eftir kvörtun um að félagið misnotaði markaðsráðandi stöðu sína. Málið er enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Höskuldur var valinn úr hópi 40 umsækjenda!!!!
Er ekki eitthvað mikið bogið við þetta samfélaga að ekki skuli vera hægt að ráð forstjóra með hreinan skjöld?!

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

þetta ríður ekki við einteyming. Er ekki til ein óspillt hræða á þessu skeri lengur

Finnur Bárðarson, 24.4.2010 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband